ARTICLE
TITLE

Hvað býður Evrópa? Um varnarþarfir Íslands og öryggis- og varnarmálastefnu Evrópusambandsins

SUMMARY

Þann 30. september 2006 urðu mikil tímamót í sögu íslenzka lýðveldisins. Á þessum milda haustdegi yfirgáfu síðustu bandarísku hermennirnir landið eftir látlausa athöfn á Keflavíkurflugvelli, rúmum 65 árum eftir að þeir tóku sér fyrst stöðu hérlendis samkvæmt samningum um að þeir sæju Íslendingum fyrir "hervernd". Þremur dögum áður hafði ríkisstjórnin kynnt fyrir þjóðinni nýtt samkomulag við Bandaríkjastjórn um breytt fyrirkomulag varnarsamstarfs landanna á grundvelli varnarsamningsins frá 1951. Forsætisráðherra fullyrti þá að nýja samkomulagið, sem kveður meðal annars á um að Bandaríkjamenn séu eftir sem áður skuldbundnir til varna Íslands en muni framvegis gera það með "hreyfanlegum vörnum" í stað fastrar viðveru herliðs hér á landi, tryggði varnarhagsmuni landsins vel. Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Riga í lok nóvember vakti Geir H. Haarde forsætisráðherra aftur á móti athygli á því að eftir brottför varnarliðsins væri Ísland eina ríkið innan NATO, þar sem ekkert eftirlit væri í lofti eða viðbúnaður á friðartímum. Í ræðunni í Riga vísaði Geir til þess að nýja samkomulagið við Bandaríkin tæki aðeins til varnarviðbúnaðar á hættutímum, en eftir stæði þörfin fyrir eftirlit og viðbúnað á friðartímum. "Loftrými bandalagsins er skilgreint sem ein heild og þess vegna er þetta ekki bara okkar mál," sagði ráðherrann. Betri viðbúnaðar væri þörf á friðartímum, einkum til að halda uppi fullnægjandi eftirliti í lofthelginni. Því myndu íslenzk stjórnvöld bera málið upp til umræðu í Norður-Atlantshafsráðinu, fastaráði bandalagsins. Ennfremur hefur ríkisstjórnin leitað eftir viðræðum við einstaka NATO-bandamenn, sérstaklega Noreg og Danmörku, til að ræða hvernig bandalagið og viðkomandi grannþjóðir geta orðið Íslendingum að liði við að bæta úr þessu og tryggja öryggi landsins til framtíðar. Í umræðum um hvaða leiðir Íslendingum standi til boða í þessu sambandi hefur sú spurning gjarnan komið upp, hvað Evrópa hafi upp á að bjóða. Þannig var til dæmis yfirskrift fundar sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg efndu til með enskum hermálasérfræðingi í byrjun nóvember þessi: "Öryggis- og varnarþörf Íslands: Er Evrópa svarið?" Enski fyrirlesarinn, Richard Holmes frá öryggis- og varnarmáladeild Cranfield-háskóla, svaraði þessari spurningu reyndar ekki, að öðru leyti en því að hann líkti samkomulaginu sem Íslendingar hefðu nú við Bandaríkjamenn við belti, sem væri gott að hafa til að missa ekki niður um sig buxurnar. En þar sem um öryggi lands og þjóðar væri að tefla teldi hann ráðlegt að hafa axlabönd líka, og þau þyrftu Íslendingar að sækja sér með efldu varnarsamstarfi við næstu grannþjóðirnar í Evrópu. Auk þess að leggja meira af mörkum sjálfir til að tryggja eigið öryggi. Hér verður gerð tilraun til að svara þessari spurningu betur og sjónum einkum beint að því sem Evrópusambandið hefur upp á að bjóða og þróun öryggis- og varnarmálastefnu ESB rakin og metin.

 Articles related

Bragi Guðbrandsson    

Hér er á ferðinni þriðja athugun Rauða kross Íslands á þessu viðfangsefni, sú fyrsta frá 1994, önnur frá 1999 og svo sú sem hér er til umræðu. Eftir lestur skýrslunnar verð ég að telja það athyglisverðast, og standa raunar algjörlega upp úr, að þeir þjóð... see more


Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir    

Almennt er litið svo á að stefna sé mörkuð með lagasetningu eða ákvörðun stjórnvalda og að fagfólk og stofnanir geri þar lítið meira en að framfylgja markaðri stefnu, þ.e. að koma stefnunni í framkvæmd. Þá er það jafnframt útbreidd trú og víða reyndar te... see more


Ólafur Þ. Harðarson    

Það er áhugamönnum um fornan kveðskap fagnaðarefni að nú hefur loksins komið út aðgengilegt heildarsafn ljóða Jóns biskups Arasonar. En er ástæða til þess að skrifa um slíka bók í tímarit um stjórnmál og stjórnsýslu? Jón biskup var reyndar ekki síst stjó... see more


Ólafur Þ. Harðarson    

Ég hlakkaði til að lesa þetta kver eftir Bourdieu, enda hef ég rannsakað lýðræði, kosningar og almenningsálit í þrjátíu ár og kennt námskeið um efnið. Hafði auk þess heyrt ýmsa tala um þennan Frakka af lotningu, en er lítt eða ekki kunnugur verkum hans, ... see more


Guðmundur Steingrímsson    

Það er afskaplega vel þegið verk á Íslandi að vel skrifandi maður skuli setjast niður og setja hugsanir sínar á blað. Sjálfstæðar viðureignir Íslendinga við hugmyndasöguna af því tagi sem Einar Már Jónsson hefur hér skrifað af mikilli andagift eru alltof... see more